157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

fjölskyldusameiningar.

448. mál
[17:58]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Karl Gauti Hjaltason) (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir hennar svar. En ég verð að segja það, frú forseti, að það er alveg einkennilegt hversu úrug hæstv. dómsmálaráðherra verður gagnvart spurningum um þessi málefni og sérstaklega frá Miðflokksfólki. Hún verður afskaplega úrug í hvert skipti sem á þetta er minnst við hana. Þó erum við sífellt að hvetja hana og hrósa henni fyrir öll þau smáu skref sem hún hefur stigið. Hvert erum við komin og hvar erum við stödd þegar hæstv. dómsmálaráðherra telur það sérstaklega hrósvert í ráðuneytinu að þau skyldu hafa grafið upp þessar upplýsingar um að hér væru á annan tug barna sem hefðu engin blóðtengsl við nokkra lifandi sálu hér á landi en eru samt hingað komin á grundvelli fjölskyldusameininga. Ég tel ekki að það krefjist einhverrar sérstakrar viðurkenningar til hæstv. dómsmálaráðherra að krafsa þetta upp úr þeim rústum sem þessi málaflokkur hefur verið í í fjöldamörg ár. Það þarf auðvitað að laga til í þessum málaflokki og við þurfum að gera það saman. Ég hélt að við værum í sama liði, ég og hæstv. dómsmálaráðherra, að laga til í þessum málaflokki og koma skikki á hann en ekki að bregðast svona við eðlilegum spurningum, eins og þeim sem ég spurði hér áðan.