157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

Schengen-samstarfið.

493. mál
[18:03]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Snorri Másson) (M):

Virðulegur forseti. Það er gömul saga og ný að deilt er um það hvort Schengen-samstarfið tryggi, bæti, breyti eða geri jafnvel verra öryggi hér á landamærunum. En mér heyrist að yfirleitt sé samhljómur um að þetta samstarf sé nauðsynlegt fyrir Íslendinga, ekki síst í ljósi margvíslegra kerfa og gagnagrunna sem við höfum aðgang að. Þetta er hins vegar kerfi sem er þannig grundvallarhagsmunamál fyrir Íslendinga að við verðum að vera í sífelldri umræðu um það.

Ég minnist þess, þegar menn komu hér frá Schengen á sínum tíma, að ég hripaði niður hjá mér tölfræði og þá var sagt að 900.000 gerðu tilraunir til að komast inn í Schengen á hverju ári, þ.e. á heildina litið, 40% þeirra fengju já, 60% fengju nei og af þeim sem fengju nei yrðu samt 80% eftir. Þannig að jafnvel þótt svarið sé nei í kerfinu eru rosalega margir sem komast inn. Þetta þýðir náttúrlega hvað varðar landamæri, óháð því hvert sannleiksgildi þessara talna er, en ég fékk þetta frá réttum aðilum, að það er ákveðin greið leið inn í Schengen og við erum samt hluti af því.

Ég beindi að þessu sinni erindi mínu til hæstv. dómsmálaráðherra um ákvörðun spænskra stjórnvalda sem þarf svo sem ekkert endilega sérstaklega að taka út fyrir sviga en er kannski til marks um þá stöðu sem við Íslendingar erum í gagnvart öðrum samstarfsríkjum okkar í Schengen, að ef stjórnvöld þar ákveða eftir atvikum að opna landamæri sín ríkulega, í hvaða stöðu erum við til þess að hafa áhrif á slíkar ákvarðanir þegar við höfum þeirra hagsmuna að gæta að ef menn eru komnir inn á Schengen-svæðið, fá atvinnuleyfi, jafnvel dvalarleyfi, jafnvel ótímabundið eða varanlegt dvalarleyfi á þessum stöðum, þá eigi þeir greiða leið hingað, hvað þá ef menn fá ríkisborgararétt. Það er þetta hagsmunamál íslenskra stjórnvalda sem maður er að reyna að velta upp gagnvart hæstv. dómsmálaráðherra, að velta því upp hver afstaða hæstv. ráðherra er til þessarar aðgerðar, að taka 500.000 manns á einu bretti og veita þeim dvalar- og atvinnuleyfi án þess að skilyrði séu uppfyllt. Hvort hæstv. ráðherra telji að svona nokkuð og svona þróun, ef hún er þarna eða víðar, geti haft áhrif á Schengen-samstarfið.

Ég spyr einnig hvort hæstv. ráðherra hyggist beita sér eitthvað fyrir hönd íslenskra stjórnvalda eða kynna afstöðu þeirra með einhverjum hætti vegna þess að það er ekkert launungarmál að um þetta hefur verið töluverð umræða, hvort sem er í innanlandsmálum á Spáni eða t.d. hjá Austurríkismanninum, sem er framkvæmdastjóri innanríkis- og fólksflutningamála hjá Evrópusambandinu, Magnus Brunner, sem beindi því við þetta tilefni til Spánverja að gæta þess sérstaklega að þetta hefði ekki áhrif á önnur ríki. Þetta er því hagsmunamál okkar á Íslandi vegna þess að við erum í þessu samstarfi.

Svo var einnig spurning um Indlandssamning Evrópusambandsins og um það hvort hæstv. ráðherra telji almennt að Íslendingar eigi að beita sér gegn opnari innflytjendastefnu aðildarríkja Schengen-samstarfsins.