Schengen-samstarfið.
Frú forseti. Ég vil þakka sérstaklega fyrir þessa umræðu. Þetta er eitt af stóru málunum í samfélaginu í dag, sá vandi sem steðjar að Evrópu hvað varðar aðstreymi fólks. Þessar nýjustu fregnir um lögleiðingu eða útgefin leyfi til hálfrar milljónar ólöglegra aðila á Spáni þangað inn og þessi samningur við Indland vekur auðvitað upp spurningar um það hvort Evrópuríkin, og það er kannski mín hugleiðing, séu búin að gefast upp á að halda uppi ytri landamærum Schengen. Er það það sem maður getur lesið út úr þessu, sérstaklega þessum atburðum á Spáni? Eru menn að gefast upp fyrir þessu?