157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

Schengen-samstarfið.

493. mál
[18:17]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég þakka þingmönnum fyrir góða umræðu hvað þetta varðar. Hv. þingmaður vísaði til þess hver orð og hverjar aðgerðir Magnus Brunner hafa verið í þessum efnum þannig að umræðan um þetta er fyrir hendi og viðbrögðin liggja fyrir. Ég tel mikilvægt að hafa í huga að áhættan fyrir Ísland af svona hreyfingum er almennt takmörkuð og sameiginlegar reglur eins og Dyflinnarreglugerðin kveða mjög skýrt á um ábyrgð ríkja. Allar þær breytingar sem eru að verða á regluverki og framkvæmd — það er áhugavert að fylgjast með því á þessum fundum því tónninn er hinn sami alls staðar og er mjög skýr. Úr öllum áttum er stefið hið sama um að þrengja og herða. Stefna mín og ríkisstjórnarinnar felst hins vegar ekki í því að ætla að loka landamærum eða standa gegn eðlilegum hreyfanleika fólks heldur að tryggja að við séum með skýrar og ábyrgar reglur um rétt til dvalar hér á landi. Í því samhengi sem hv. þingmaður nefnir hér má líka velta fyrir sér hvernig aðgengi er að ferðaskilríkjum í kjölfar svona mála. En við viljum hreyfanleika til að skapa greiða og gagnsæja leið fyrir hæfileikaríkt fólk, fyrir sérfræðinga, fyrir atvinnulífið til að starfa hér á landi þegar þörf er fyrir slíka þekkingu í íslensku samfélagi.

Ég er mjög hlynnt Schengen-samstarfinu. Ég held að það sé lykilverkfæri fyrir löggæsluna. Ég er líka hlynnt áframhaldandi veru okkar í EES því ég man þegar við ræddum dvalarleyfi hér síðast í þessum þingsal, við hv. þingmaður, þá kom fram af hálfu varaformanns Miðflokksins að hann væri tilbúinn til að skoða það alvarlega að jafnvel stíga það skref að fara úr EES-samstarfinu. Hér erum við bara ósammála. EES-samstarfið er alger grundvallarstoð og alger lykilforsenda fyrir íslenskt efnahagslíf, íslenskt atvinnulíf. Meðalið má ekki vera hættulegra en sjúkdómurinn.