157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

fundur þingflokksformanna með forseta um atkvæðagreiðslu.

[19:33]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég hef sætt, að mínu mati, ótrúlegum ásökunum hér um ósannsögli, svik og ótrúverðugheit í tengslum við atkvæðagreiðslu sem fyrirhuguð var. Hér hefur hver þingmaður stjórnarflokkanna komið hver á eftir öðrum með staðlausa stafi, kannski svolítið í anda máltækisins þegar ein beljan mígur þá míga þær allar, og fullyrt hér um samskipti milli þingflokksformanna sem menn hafa greinilega enga innsýn inn í.

Virðulegur forseti. Ég óska eftir því að hér verði gert hlé á þessum þingfundi fyrir þingflokksformenn til að funda með forseta til að fara yfir það hvað satt og rétt sé í þessu máli.