157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

fundur þingflokksformanna með forseta um atkvæðagreiðslu.

[19:34]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Ég tek undir beiðni hv. þm. Sigríðar Á. Andersen. Ég tel fullt tilefni til að farið verði yfir þessi mál hið snarasta í ljósi þess hvernig nokkrir hv. þingmenn stjórnarliðsins létu hér áðan, ekki hvað síst hv. þingflokksformenn Viðreisnar og Samfylkingar, og sökuðu hv. þm. Sigríði Á. Andersen um svik og því fylgdu ýmis önnur brigslyrði. Eftir því sem næst verður komist höfðu hv. þingmenn ekki aðeins misskilið málið og byggðu hinar yfirgengilegu athugasemdir sínar á misskilningi, nei, ég fæ ekki betur séð, eftir að hafa skoðað þetta mál, en að þeir hafi viljandi farið með rangt mál; sagt ósatt til að koma höggi á hv. þm. Sigríði Á. Andersen og saka hana um svik sem sannarlega voru engin að ég tel, herra forseti, en ég tel fullt tilefni til þess að fundað verði um þetta mál hið snarasta.