lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Þingskapalög eru skýr varðandi þá ákvörðun sem virðulegur forseti tók áðan, svo því sé haldið til haga. En að gefnu tilefni langar mig að lesa upp úr greinargerð sem fylgdi frumvarpi um þingskapalögin:
„Þá er lagt til tekið verði upp í þingsköp ákvæði um hversu lengi reglulegir þingfundir geti staðið og möguleg frávik frá því. Gert er ráð fyrir að þingfundir standi fram að kvöldmat en svigrúm er til þess að ljúka ræðu, andsvörum eða hugsanlega umræðu eftir kl. 7 og fram til kl. 8 ef nauðsyn ber til. Tillögu um slík frávik getur forseti lagt fram en hún hlýtur þó aðeins samþykki að þingfundur sé ályktunarbær og meiri hluti atkvæða sé fyrir henni. Með því að festa í þingsköp skýrari ákvæði um starfsáætlun þingsins er stefnt að því að skipuleggja þingstörfin betur en áður. […]
Með frumvarpinu er stefnt að því að fækka kvöld- og næturfundum þannig að þeir heyri til undantekninga. Ef ekki eru sammæli milli þingflokka um að fundir standi fram á kvöld (eða nótt) til að ljúka ákveðnum málum þarf sérstakt samþykki þingsins til þess að svo verði.“(Forseti hringir.)
Í nefndaráliti meiri hlutans stendur:
„Gert er ráð fyrir því í frumvarpinu að þingfundir standi almennt ekki lengur en fram að kvöldmat. Sé hins vegar þörf á lengri fundartíma verði kvöldfundir á þriðjudagskvöldum. Þar fyrir utan verði kvöldfundir ekki haldnir nema í undantekningartilvikum.“(Forseti hringir.)
Þetta er ákvörðun Alþingis. (Forseti hringir.) Þetta eru þingskapalög. Það er ekki á ábyrgð minni hlutans hér í þinginu (Forseti hringir.) að meiri hlutinn og ríkisstjórnin skuli ítrekað koma fram með stór mál á síðari tímum. Þingskapalög eru skýr (Forseti hringir.) (Gripið fram í: … virða ræðutímann. )og það er verið að ganga í algjört berhögg (Forseti hringir.) [Framíköll í þingsal.] við þá hefð með þeirri fundarstjórn sem hérna hefur verið og taugaveiklun þingmanna meiri hlutans er ekki á ábyrgð okkar.