staða ríkisfjármála og horfur í efnahagsmálum.
Frú forseti. Það er alveg sérstakt að hér kemur hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og skammast hér inn í einhverja fortíð í staðinn fyrir að svara spurningunni: Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera til að ná niður verðbólgunni því að hún er ekki að gera nokkurn skapaðan hlut annað en að ýta undir verðbólguna? Ég ætla bara að benda hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra á það að aðhaldið hefur ekkert verið hjá þessari ríkisstjórn, ekkert verið. Það var meira aðhald í tíð fyrri ríkisstjórnar, mun meira.
En þetta er ekki eitt, það er allt í ólagi hjá þessari ríkisstjórn því í dag stendur til að greiða hér atkvæði um frumvarp um tengingu bóta við launavísitölu. Seðlabankastjóri hefur sagt að þetta skjóti skökku við. Þetta hjálpar ekki til. Seðlabankastjóri hefur sagt að þetta muni ýta undir verðbólguna og bætist hann í hóp nánast allra hagfræðinga landsins sem sjá ekki snilldina í þessu frumvarpi. (Forseti hringir.) Enn einn sérfræðingurinn sem ríkisstjórnin vill ekki hlusta á, seðlabankastjórann sjálfan. Hvernig stendur á því að það eru einungis hagfræðingar í ríkisstjórn Íslands sem finnst þetta frumvarp vera gott frumvarp?