157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.

[10:44]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Hækkun á verðlagi veldur hækkun á verðlagi, segir hæstv. ráðherra. Þetta reyndum við að benda hæstv. ráðherra á ítrekað þegar verið var að ræða fjárlagafrumvarpið hér fyrir áramót. Þá kannaðist hæstv. ráðherra ekki við þau áhrif sem yrðu af því ef ríkisstjórnin legði línurnar með gjalda- og skattahækkunum sínum. En hæstv. ráðherra heldur áfram að endurskilgreina hlutina. Fjárlagafrumvarp með 143 milljarða halla, eins og fram kom í frumvarpinu sjálfu mjög skýrt, er núna tilbúningur, 143 milljarða útgjaldaaukning er núna tilbúningur og um leið ræðst hann í enn nýjar endurskilgreiningar á því hvað verðbólga sé. En í undirtölum hækkana síðustu 12 mánuði, verðlagshækkana, kemur skýrt fram að það er einn liður sem gnæfir yfir alla aðra. Og hvaða liður skyldi það vera? Opinber þjónusta. Ætlar hæstv. ráðherra núna, í áformum sínum um að taka á málunum í fjármálaáætlun,(Forseti hringir.) að taka á útgjaldaaukningu ríkisins?