aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir spurninguna. Stutta svarið er já. Það er markmið okkar að hægja einmitt á þessari aukningu. Hún hefur verið og var mjög hröð. Það er ýmislegt sem veldur áhyggjum í þróun undangenginna ára eins og t.d. mikil fjölgun ríkisstarfsmanna. Það er mjög mikil ástæða til þess að horfa gagnrýnum augum á hvernig peningum er ráðstafað. Það er nákvæmlega það sem við munum gera. Það er gríðarlega mikilvægt að ríkið sýni aðhald.
Það er síðan almennt séð þannig að ég kann því ekki vel þegar mér eru lögð orð í munn og ég kannast nú ekki við að ég hafi sagt það sem hv. þingmaður nefndi um áhrif verðlagsbreytinga. Ég held að þetta sé almennt vel þekkt. Spurningin er bara þessi hér: Hver eru áhrif hækkana opinberra gjalda á eftirspurn og eru þau ekki fyllilega sambærileg við vaxtahækkanir? (Forseti hringir.) Og hvernig geta þá hv. þingmenn komið hér upp og talað um verðbólguhvetjandi aðgerðir?