157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

sviðsmyndir hagvaxtar í fjármálaáætlun.

[10:47]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2026–2030 er fjallað um svonefndar frávikssviðsmyndir, annars vegar bjartsýna sviðsmynd og hins vegar svartsýna sviðsmynd um þróun efnahagsmála. Það er alltaf auðvelt, virðulegur forseti, að vera bjartsýnn. Það er hins vegar svartsýna sviðsmyndin sem vekur sérstaka athygli. Þar segir m.a. að ef erfiðlega gangi að ná verðbólgu niður að markmiði muni stýrivextir þurfa að vera háir lengur, atvinnuleysi aukast, fjármögnunarkostnaður fyrirtækja versna, fjárfestingar dragast saman og afkoma hins opinbera versna verulega.

Þar segir jafnframt, og ég vitna orðrétt í bls. 35, með leyfi forseta:

„Skorti hagstjórnina trúverðugleika er hún síður í færum til að milda efnahagsleg áhrif ytri áfalla.“

Spurning mín til hæstv. fjármálaráðherra er því þessi: Telur ráðherrann ekki að ýmis megineinkenni þessarar svartsýnu sviðsmyndar séu nú þegar farin að birtast í íslensku efnahagslífi? Verðbólga mælist tvo mánuði í röð 5,2% og Seðlabankinn hækkaði í gær stýrivexti í 7,5%, m.a. með vísun til aukinnar undirliggjandi verðbólgu, og atvinnuleysi er í hæstu hæðum. Er hæstv. ráðherra sammála því að þessi þróun sé a.m.k. farin að líkjast þeirri áhættu sem ríkisstjórnin sjálf lýsti í fjármálaáætlun?