sviðsmyndir hagvaxtar í fjármálaáætlun.
Virðulegur forseti. Ég vil nú þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir mjög hreinskiptið og heiðarlegt svar. Ég tek undir með hæstv. ráðherra um að því miður virðist það vera þannig að sú svartsýna sviðsmynd sem var teiknuð hér upp í fjármálaáætlun sé því miður að verða líklegri og líklegri og þau varnaðarmerki sem ráðuneytið sjálft skrifaði inn í fjármálaáætlun séu farin að sjást æ skýrar.
Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hér í síðara andsvari — þó að ég hafi heyrt það hér í fyrri fyrirspurnum en mig langar að hnykkja á því vegna þess að þetta skiptir máli, þetta er það sem er verið að spyrja um í úti í samfélaginu. Þessi óveðursský sem í raun og veru eru að teiknast upp, (Forseti hringir.) er ekki nauðsynlegt að Alþingi og almenningur fái í raun og veru skýr svör um viðbrögðin, um hvaða áætlanir, hvaða verkefni hæstv. ríkisstjórn ætlar að ráðast í (Forseti hringir.) til að bregðast við þessari svörtu sviðsmynd, sem er því miður að teiknast upp hér fyrir framan okkur?