viðbrögð við verðbólgu og vaxtahækkunum.
Virðulegur forseti. Af orðum hæstv. fjármálaráðherra að dæma er greinilegt að Seðlabanki Íslands og almenningur standa ein úti á hjarninu þegar það á að berjast við verðbólguna. En mig langar í lokin að koma hér upp og leiðrétta málflutning hæstv. fjármálaráðherra þegar hann talar um við hvaða búi hann hafi tekið. Fjárlög voru rekin með afgangi frá 2015 fram að Covid undir stjórn Bjarna Benediktssonar. Í Covid stóðu flokkssystkini hæstv. fjármálaráðherra og kölluðu eftir því að meiri peningum væri eytt, það væri ekki nóg gert, það þyrfti að eyða meira og meira og þau kölluðu eftir því.
Það var þverpólitísk samstaða um að takast á við þær áskoranir sem Grindavík átti við að etja. Ég vil bara gefa hæstv. fjármálaráðherra tækifæri á að koma upp og leiðrétta málflutning sinn hér í ræðu sem hann hélt áðan þar sem hann talaði um að hann hefði tekið við búi þar sem hefði verið óstjórn, þegar flokkssystkini hans vildu ekki standa á bremsunni heldur dæla út peningum enn þá meira heldur en gert var í Covid.