veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.
Frú forseti. Hér er um að ræða gott mál sem er mikilvægur liður í því verkefni að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði. Það er ekki síst verðugt markmið til að koma til móts við ungt fólk og tekjulága sem hafa um árabil átt erfitt með að fóta sig á þessum markaði. Þetta er ekki nýtt vandamál. Þetta er nokkurra ára gamalt, býsna margra ára gamalt, og fer vaxandi með ári hverju. Það hefur í orði verið reynt að bregðast við því undanfarin ár. Það hefur ekki tekist. Hér er vonandi verið að stíga skref í þá átt. Og ég verð að segja að þegar ég hlusta á málflutning stjórnarandstöðunnar hér þá er ósköp skiljanlegt af hverju það hefur ekki tekist til þessa.