157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

114. mál
[11:15]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta er bara enn eitt málið þar sem vinstri menn ganga alltaf lengra og lengra í að skerða frelsi fólks, skerða eignarréttinn, skerða frelsi fólks til þess að ráðstafa sínum eignum sjálft. Það er ótrúlegt að hlusta á þennan málflutning sem er búinn að vera í umræðu um þetta þegar hv. þingmenn koma hér upp og töluðu jafnvel um að vonandi yrði þetta til þess að þvinga fólk til að selja þessar eignir, fólk úti á landi sem hefur keypt eignir, t.d. í Reykjavík, undir börnin sín sem eru að fara í framhaldsnám. Það er síðan allt öðruvísi ef þú býrð í Reykjavík og átt sumarbústað úti á landi. Þarna er verið að ganga gegn eignarréttinum. Hér er talað um að þetta sé fjárfestingarvara af því að vinstri menn vilja ákveða hvernig þú fjárfestir í staðinn fyrir að trúa bara því að ef fólk vill fjárfesta í eign, t.d. í Reykjavík, þá eigi því bara að vera frjálst að gera það (Forseti hringir.) og eigi að hafa frelsi til að ráðstafa þeirri eign. En frelsið er mjög þröngt hugtak hjá vinstri stjórninni.