veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.
Virðulegur forseti. Ég styð málið. Það er rétt að forgangsraða í húsnæðismálum með þeim hætti að íbúðir eigi fyrst og fremst að vera heimili fólks, að fólk fái tækifæri til að eignast íbúðir og eignast sitt heimili til að búa í. Fólki verður áfram heimilt að leigja út heimili sitt eða sumarhús í allt að 90 daga á ári. Mörgum hér hefur verið tíðrætt um landsbyggðina. Almennt á venjulegt fólk af landsbyggðinni ekki fasteign þar og á höfuðborgarsvæðinu. Þau sem það geta geta staðið undir þeim kostnaði. Það bara segir sig sjálft. Heimilt er nú sem áður að leigja út og gera leigusamning. Það er ekkert sem hamlar því.