157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[11:34]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við greiðum atkvæði um mjög gott mál, mikilvægt mál til að stemma stigu við þeirri kjaragliðnun sem hefur orðið á milli lágmarkslauna og bóta almannatrygginga, löngu tímabært mál. Við erum að fjalla hér um kjör þeirra allra lægst settu í okkar samfélagi. Sú orðræða hefur verið í þingsal og opinberlega að hér sé mögulega um stærstu hagstjórnarmistök að ræða, að áliti valinna hagfræðinga en fjölmargir hafa tjáð sig líka á hinn veginn og talið að þetta sé til bóta og hafi ekki þau neikvæðu áhrif eins og hefur verið talið hingað til. Í því samhengi er hægt að reikna út að nettóáhrifin af frumvarpinu eru um 0,2% á ríkisútgjöld á þessu ári. Samanborið við það, og þingmenn ættu að hafa það í huga, að launa- og verðlagsuppbætur almennt (Forseti hringir.) í ríkisútgjöldum eru 40–50 milljarðar á ári. Það er nú öll sjálfvirknin, 40–50 milljarðar (Forseti hringir.) á ári eða meira. Og talandi líka um hagstjórnarmistök, við vorum bara rétt í þessu, (Forseti hringir.) eða síðasta vor, að klára 650 milljarða uppgjör Íbúðalánasjóðs.

(Forseti (BHar): Forseti biður hæstv. ráðherra og hv. þingmenn að virða tímamörkin sem eru ein mínúta undir þessum lið.)