157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[11:36]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þetta mál er með öllum ólíkindum. Ég hef sagt það opinberlega og ætla að segja það aftur að af öllum vondum málum ríkisstjórnarinnar er þetta líklega eitt af því versta — eitt af því versta. Og þó að hæstv. ráðherra segi að þetta séu ekki hagstjórnarmistök þá tel ég að hér séu í uppsiglingu alvarleg hagstjórnarmistök sem meiri hlutinn hér í þessum sal muni þurfa að bera ábyrgð á. Það er sérstakt að heyra hæstv. ráðherra tala um að fjölmargir hagfræðingar styðji málið. Það er einn hagfræðingur sem hefur sagt að þetta mál sé líklega ágætt en þarfnist samt meiri vinnu en hvorki ríkisstjórnin né nefndin hafa viljað hlusta á nein varnaðarorð eða vinna þetta mál af einhverju viti. Þetta er ekki gott mál. Það er ekki að standa með öryrkjum að setja kerfi á sjálfvirkan gír sem getur aukið verðbólguþrýsting og hækkað vexti. Það er ekki gott að stuðla að máli sem mun veikja ríkisstjórn (Forseti hringir.) til að halda utan um útgjöld sín. Og það er ekki gott að þetta mál mun veikja (Forseti hringir.) velferðarkerfið en ekki styðja það. Það mun ekki styðja við hina veikustu sem þurfa mest á því að halda.