157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[11:39]
Horfa

Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við erum ekkert að breyta þessu kerfi neitt í grunninn með þessum lögum. Við erum bara einfaldlega að breyta viðmiðinu úr launaþróun, sem er mjög óljóst hugtak, yfir í launavísitölu. Staðreyndin er sú að greiðslur almannatrygginga hafa dregist aftur úr launum á undanförnum árum og við erum að bregðast við því. Kostnaður ríkissjóðs mun ekki fara úr böndunum. Þetta fólk er ekki það sem keyrir áfram verðbólguna á Íslandi og háa vexti. Lífeyrisgreiðslur almannatrygginga eru fyrir fólk sem hefur ekki aðra framfærslu, fólk sem getur einfaldlega ekki ákveðið að vinna meira eða breyta stöðu sinni.

Undir þessu frumvarpi eru líka ellilífeyrisþegar sem hafa ekki byggt upp réttindi í lífeyrissjóðum. Þar eru konur í meiri hluta, konur sem hafa verið á lægri tekjum, verið utan vinnumarkaðar hluta ævinnar eða í störfum sem skiluðu takmörkuðum réttindum. Þess vegna er ekki málefnalegt að tala þennan hóp niður eða gera lítið úr stöðu hans. Við eigum ekki að byggja samfélag þar sem fólki er haldið í fátækt vegna þess að það getur ekki unnið og við eigum ekki að sætta okkur við að þessir hópar dragist kerfisbundið aftur úr. Þetta frumvarp er einföld leiðrétting. Ég verð græn.