157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

almannatryggingar.

155. mál
[11:43]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ef einhver á erfitt með að skilja af hverju ríkisstjórnin á erfitt með að ná tökum á verðbólgunni kom skýringin bara rétt í þessu. Hér kom fram stefna ríkisstjórnarinnar og allir stjórnarliðar kölluðu heyr eftir þessa síðustu ræðu.

Virðulegur forseti. Hverjir eru fórnarlömb verðbólgunnar? Það eru þeir sem minnst hafa og þeir sem skulda. Og hér í dag hefur ríkisstjórnin staðfest að hún skilar auðu í því að reyna að koma böndum á verðbólguna en samþykkir frumvarp sem m.a. Seðlabankinn hefur sagt að sé verðbólguþrýstingsfrumvarp.

Virðulegi forseti. Þetta mál mun ekki hjálpa (Forseti hringir.) þeim hópi sem er á strípuðum bótum. Sá hópur mun finna fyrir verðbólgunni (Forseti hringir.) og allir þeir hópar sem eru með lágar tekjur, á lágum launum og finna fyrir verðbólgunni, (Forseti hringir.) þeir finna fyrir þessum aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Það er eitt, virðulegi forseti, að skila auðu en að samþykkja verðbólguþrýstingsfrumvarp (Forseti hringir.) við þessar aðstæður er mjög alvarlegt.

(Forseti (BHar): Forseti minnir aftur á tímamörkin sem eru ein mínúta í þessum lið.)