157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[13:44]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar yfirferð yfir þetta mál sem hljómar bara ágætlega, að fækka erlendum brotamönnum í fangelsunum okkar og minnka álag þar. En þar sem hæstv. ráðherra er töluvert fróðari um þessi mál heldur en sá sem hér stendur þætti mér ágætt að vita hvort ráðherrann geti svarað því hvort í þessu frumvarpi sé gætt að jafnréttissjónarmiðum. Hér er lagt til að erlendir fangar sem á að vísa úr landi geti fengið reynslulausn eftir aðeins þriðjung refsitímans á meðan aðrir þurfa almennt að þola lengri afplánun. Er þetta í samræmi við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar, er það alveg öruggt? Hvernig tryggir hæstv. ráðherra að þessi mismunandi aðferð gagnvart íslenskum föngum og erlendum sé málefnaleg og standist lögfræðilega skoðun til lengri tíma? Og svo kannski í lokin: Af hverju er þetta ekki skyldubrottvísun heldur heimild? Reyndar fór ráðherrann aðeins yfir það í máli sínu en það væri ágætt að fá aðeins betri útskýringu á því að heimildin sé sterkara vopn en skyldan. Kannski tengist það jafnræði að einhverju leyti. Þetta er svona það fyrsta sem ég vil spyrja hæstv. ráðherra um.