157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[13:45]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir spurninguna. Hún er góð og hún er „valid“. Hins vegar er það þannig þegar við nálgumst sjónarmið um jafnræði eða jafnrétti að þá þurfa mál auðvitað að vera hliðstæð. Við erum með einhver sjónarmið um það hvenær reynslulausn á við og sjónarmið um hvað gerist þá til að ná því fram. Menn eru ekki í sömu stöðu. Hér er um að ræða einstaklinga sem hafa engin tengsl við landið. Hin samfélagslegu markmið, almannahagsmunirnir eru ekki að bíða eftir reynslulausn, þ.e. að ná þessum einstaklingi aftur inn í samfélagið. Það er bara ekki reyndin. Síðan er það þannig, ef maður horfir á þetta sem eitthvert léttvægt úrræði, að það bíður bara þeirra manna sem vitað er að verður brottvísað úr landinu. Aðrir útlendingar sem eru búsettir hér á landi og eru með tengsl við landið, hafa jafnvel búið hér árum saman, falla undir sömu kríteríur og Íslendingar. Þetta gildir um tengslalausa einstaklinga og þetta er tímabundið úrræði og þessu fylgir gríðarlega þungur pakki að lokinni brottvísun; með endurkomubanni. Í mörgum tilvikum eru þessir menn ekki á Schengen-svæðinu, hreyfanleiki inni á svæðinu er stórkostlega skertur í kjölfarið.

Ég skil spurninguna. Þetta er auðvitað ekki alveg augljóst. Við erum að bregðast við gríðarlega þungri stöðu. Það eru 750 manns sem bíða fangelsisplássa. Það er staða sem ógnar samfélagslegri stöðu landsins, sem ógnar öryggi borgaranna og það væri óábyrgt að bregðast ekki við. Það er engin töfralausn til en ég hef trú á þessari leið, það mun muna um hana. Og fréttin sem sögð verður annars staðar er: Við ætlum ekki að hýsa glæpamenn.