fullnusta refsinga.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég minni á spurninguna um heimild og skyldu. Ráðherra hefur reyndar bara mínútu til þess. Ég veit ekki hvort hún nær að koma því að en það væri fróðlegt. Síðan langar mig að spyrja hæstv. ráðherra um markmið refsinga og áhrif frumvarpsins. Hún hefur reyndar farið hér um víðan völl og útskýrt margt og í greinargerðinni kemur fram að meginmarkmiðið sé m.a. að losa um afplánunarrými og stytta þennan boðunarlista, sem er skiljanlegt. En það vekur spurningar um hvort verið sé að breyta framkvæmd refsinga fyrst og fremst vegna álags á kerfið. Er það þannig? Telur hæstv. ráðherra það samræmast markmiðum refsiréttar að einstaklingar afpláni aðeins þriðjung refsingar sinnar hér á landi og séu síðan sendir úr landi? Þannig að það er spurning um heimildina og svo þessi seinni spurning, ef það væri hægt að verða við því.