157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[13:50]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir framsöguna og framlagningu þessa frumvarps og ég hef fullan skilning á því að það sé til að bregðast við tilteknu ástandi í fangelsum. Eins og ráðherra hefur farið yfir þá er það kannski tvískipt, í fyrri hlutanum er verið að skerpa á orðalagi, ef ég skil það rétt, og hæstv. ráðherra leiðréttir mig þá, t.d. með 3. gr., um breytingu á orðalagi er varðar reynslulausn. Ég skil það þannig að það sé í rauninni verið að þrengja möguleika útlendinga til að fá reynslulausn eða kannski til þess að hvetja þá til þess að ljúka sínum málum í stjórnsýslunni. Ég held að það sé jákvætt að gera það í rauninni. Hins vegar finnst mér hæstv. ráðherra ekki hafa svarað því með nógu skýrum hætti hvernig 4. gr., þar sem gert er ráð fyrir undanþágu fyrir útlendinga varðandi reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn, samræmist jafnræðissjónarmiðum gagnvart íslenskum föngum. Hvernig myndi hæstv. ráðherra svara íslenskum fanga sem spyr um þetta, fanga sem hefur framið sama brot og útlendur maður sem afplánar með honum og útlendi maðurinn fær reynslulausn eftir einn þriðja hluta tímans en íslenski fanginn helming tímans? Hvernig svarar hæstv. ráðherra þessum íslenska fanga sem spyr að þessu, eðlilega? Væri ekki nær að hleypa íslenskum föngum fyrr út í reynslulausn en ekki hinum erlendu? Hefur hæstv. ráðherra ekki áhyggjur af því að þessi stytting á refsitímabilinu gagnvart útlendingum muni reynast sem segull á t.d. burðardýr og þá sem eru að afplána hér fyrir fíkniefnainnflutning?