157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[13:54]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. En hræðist hæstv. dómsmálaráðherra þetta ekki út frá stjórnarfarinu, þ.e. með tilliti til stjórnarskrárvarinna réttinda Íslendinga hér á landi sem eiga kröfu til þess að standa jafnfætis útlendingum hér á landi þegar kemur að veitingu reynslulausnar? Dæmið sem ég lagði fram er Íslendingur sem fremur sama glæp og útlendingurinn, báðir afplána jafn langan dóm fyrir sama glæp, útlendingurinn fær reynslulausn eftir einn þriðja tímabilsins en Íslendingurinn þarf að sitja lengur í fangelsi áður en hann fær reynslulausn. Ég dreg í efa, ég verð að segja það, svona að óathuguðu máli, að þetta standist jafnræðisákvæði stjórnarskrár.

Hitt er síðan annað mál og ég tek undir með hæstv. ráðherra að boðunarlistinn er mikill en kann ekki vera einmitt ástæða til þess að endurskoða hegningarlögin með tilliti til refsistefnunnar sem hér hefur verið viðhöfð og (Forseti hringir.) hefur farið vaxandi undanfarin ár? Er ekki frekar tilefni til að skoða þessi mál út frá þeim sjónarhóli