157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[13:57]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Forseti. Sem 2. varaformaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis þakka ég hæstv. ráðherra fyrir hlý orð í garð nefndarinnar hér í umræðum áðan. Við tökum þetta mál til vinnslu í nefndinni en það eru ýmsar spurningar sem vakna við að lesa það og maður getur tekið undir sjónarmið annarra hv. þingmanna sem hér hafa velt fyrir sér þessari mismunun á svigrúmi fanga til að komast á reynslulausn, eða í þessu tilviki að verða sendir úr landi en losna alla vega fyrr úr fangelsinu. Maður hefur heyrt það á íslenskum föngum að þeir telji nú þegar ákveðið óréttlæti í kerfinu gagnvart því þannig að hér er enn bætt í það. Það er ljóst að þetta er tiltölulega risavaxið vandamál í raun og veru, ástand fangelsanna á Íslandi, eins og hæstv. dómsmálaráðherra fer heldur ekkert í grafgötur með það. Ég velti því fyrir mér í þessu máli, af því að við erum að tala um hvata, hvort erlendir fangar fái þau skilaboð að hér fremji maður brot og sitji svo bara inni einn þriðja af tímanum sem maður er dæmdur fyrir, sem getur verið æðistutt miðað við hvernig umfang dóms ætti í raun og veru að vera. Er eitthvað sem liggur fyrir sem segir okkur að þetta muni ekki stuðla að því að auka hvata til þess að menn brjóti hérna af sér eða erum við bara að vona það? Sömuleiðis varðandi það að þetta sé tímabundin ráðstöfun í ljósi ástandsins þá vitum við nú að tímabundnar ráðstafanir vilja oft dragast á langinn. Það er bara spurning hvort við séum mögulega enn að bæta á vandann og það er bara einlæg vangavelta inn í þessa umræðu, alls ekki fullyrðing eða að maður hallist að því endilega. En gætum við verið að bæta enn á þennan vanda með því að minnka refsingar og stytta fangelsisdvöl þeirra sem brjóta þannig af sér hérna að við viljum taka þá fyrir rétt og dæma í fangelsi?