157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[13:59]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir andsvarið og er bara mjög ánægð með það að við getum átt góða umræðu um þetta málefni hér í dag. Ég held að það sé misskilningur hjá þingmanninum þegar hann segir að það sé verið að bæta í varðandi einhverja mismunun íslenskra og erlendra fanga. Þvert á móti erum við að rétta af þá framkvæmd að útlendingar hafa fengið fara fyrr á reynslulausn en Íslendingar. Íslendingar eru lengur í afplánun. Útlendingar fara fyrr á reynslulausn, jafnvel þótt við blasi að það er ekkert verið að aðlaga þá að samfélaginu. Við segjum: Nei, við tökum þessa reynslulausn burtu því þú ert að fara úr landi, þín bíður brottvísun. Ef við erum að tala um skipulagða brotastarfsemi og mönnum er vísað úr landi í gríð og erg og fá á sig endurkomubann þá erum við nú kannski aðeins farin að höggva í hreyfanleika hópsins. En ég skil hvað þingmaðurinn segir.

Varðandi tímabundnu úrræðin sem gjarnan verða varanleg; þarf þá að leggja fram frumvarp öðru sinni af því að þetta er tímabundin aðgerð og tímasett. Ég þarf þá aftur að biðla til minnar uppáhaldsnefndar, allsherjar- og menntamálanefndar, um það. Ég yrði mjög hugsi ef við gerðum þetta til lengri tíma litið. Ég er tilbúinn að gera þetta núna og láta á þetta reyna og losa um einhverja tugi plássa í fangelsunum en gefa Fangelsismálastofnun einmitt heimild til að meta í einhverjum tilvikum þar sem stofnunin vill það ekki, vill ekki losa viðkomandi og senda í burtu vegna þess að hún vill að hann klári dóminn rétt eins og aðrir. Síðan erum við auðvitað líka í öðrum aðgerðum. Við erum að taka upp samskipti og samtöl sem hafa ekki átt sér stað í meira en áratug í dómsmálaráðuneytinu, t.d. við Pólland, við Spán, um að menn afpláni í sínu heimalandi. Ég legg aftur áherslu á þetta atriði, að við séum að horfa á þetta heildstætt og reyna að koma að vandanum úr ólíkum áttum. En ég skil sjónarmiðin og ég er þingmanninum þakklát fyrir spurningarnar.