fullnusta refsinga.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég vil aðeins halda áfram með vangavelturnar um umfang þessa vanda. Ég held að ef þú færir 50 ár eða 100 ár aftur í tímann og lýstir ástandinu í íslenskum fangelsum með tilliti til hlutfalls erlendra fanga fyrir einstaklingi frá þeim tíma þá myndi hann reka upp stór augu og klóra sér mjög í kollinum. Það eru miklu frekar við sem erum orðin vön mjög óeðlilegu ástandi að mínu mati á þessu sviði og þótt þessi ráðstöfun geti kannski komið okkur í einhverja rétta átt þá veltir maður hins vegar fyrir sér stærri grundvallarmálum á þessu sviði. Hvernig hefur þetta horft við hæstv. ráðherra út frá möguleikum á að fá fleiri til að afplána erlendis? Er það virkilega svona erfitt? Sömuleiðis má velta því fyrir sér hvort við reynum ekki að hnika hlutföllunum í þeim fangelsum sem við þó höfum, hafa hreinlega bara Íslendingafangelsi og síðan útlendingafangelsi fyrst við erum nú þegar að gera mikinn greinarmun á réttindum, heimildum og skyldum þessara fanga. Væri það lausn til þess að við höldum í þá hugsjón (Forseti hringir.) fangelsiskerfisins að það sé á vegum íslenska ríkisins og að Íslendingar sem brjóti af sér njóti betrunarvistar eða eigi möguleika á því?