157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[14:04]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Hér ræðum við mál þar sem í grundvallaratriðum er verið að gera breytingar á afplánun erlendra fanga sem hafa ekki tengsl við íslenskt samfélag. Við erum í raun og veru, eins og nálgunin birtist manni hér, að flokka fanga á Íslandi svona hér um bil í þrjá hópa, gróflega. Það eru annars vegar bara Íslendingar og íslenskir ríkisborgarar og síðan eru það útlendingar, sem eru þó hluti af íslensku samfélagi með einum eða öðrum hætti og síðan eru það útlendingar sem koma hingað og fremja brot en eru ekki með tengingar við samfélagið. Það eru þessir útlendingar sem hafa ekki tengingar við samfélagið sem á nú að leyfa að afplána þriðjung dóms í fangelsi og fara svo til síns heima.

Líkt og kom fram í andsvörum við ræðu hæstv. ráðherra þá gafst hæstv. ráðherra ekki rúm til að fara betur yfir með mér hver staðan væri varðandi þá viðleitni stjórnvalda að koma fleiri föngum úr landi til afplánunar annars staðar í stað þess að fylla fangelsin hér af erlendum ríkisborgurum eins og tilhneigingin hefur verið. Þannig að maður þekkir ekki nákvæmlega hvernig gengur með það. En það væri auðvitað að mörgu leyti æskilegra að koma sem flestum í afplánun annars staðar svo íslensk fangelsi gætu nú verið þessi betrunarvist sem þau eiga að vera fyrir Íslendinga. Eins og því er lýst á nokkrum stöðum í þessu frumvarpi þá er því hreinlega mjög ábótavant og að mörgu leyti er fjallað tiltölulega tæpitungulaust um ástandið í íslenskum fangelsum sem fjölgun erlendra ríkisborgara hefur haft í för með sér. Þá getur maður vitnað, með leyfi forseta, í greinargerð frumvarpsins, þar sem segir:

„Til að mynda hefur reynst erfitt að þjónusta alla á fullnægjandi hátt, sér í lagi þegar um er að ræða einstaklinga sem tala tungumál sem fáir eða engir aðrir í fangelsinu tala. Dæmi eru um að einstaklingar af yfir 20 ólíkum þjóðernum hafi verið vistaðir samtímis í sama fangelsinu. Fyrir þessa einstaklinga er meiri hætta á félagslegri einangrun og flókið að tryggja að þeir geti átt samskipti við fjölskyldu í heimalandi svo fátt eitt sé nefnt. Þá felst í því aukin öryggisógn þar sem erfiðara er að afla upplýsinga um bakgrunn og tengslanet þessara einstaklinga, svo sem í tengslum við skipulagða glæpastarfsemi og þá ógn sem af henni stafar.“

Hér er sagt, og það er orðað kurteislega, með leyfi forseta: „Fjölgun erlendra ríkisborgara með lítil eða engin tengsl við Ísland er þannig áskorun sem þarf að bregðast við …“ Þetta er ein leið, að vísa þeim af landi brott eftir þriðjung afplánunar, í stað þess að fara á reynslulausn. Vel að merkja þá voru dæmi um það, ískyggileg dæmi sem maður heyrði af á síðustu árum, um að menn fóru einmitt þessa leið, komust úr fangelsi eftir þriðjung afplánunar en fóru þá á reynslulausn á Íslandi í stað þess að vera sendir beint úr landi. Ég tel það jákvæða breytingu að senda menn alla vega frekar úr landi þótt eftir standi þessi spurning gagnvart íslenskum föngum þar sem maður hefur heyrt óánægju með að afplánunartíminn sjálfur sé skemmri hjá útlendingum en Íslendingum.

Hér er fjallað um að þetta eigi ekki að fela í sér sérstakan hvata fyrir erlenda ríkisborgara til þess að fremja afbrot á Íslandi og við verðum að trúa því við vinnslu svona frumvarps vegna þess að þetta snýst um að létta á fangelsiskerfinu. Það er talað um að endurkomubannið feli í sér fælingarmátt. Jú, vissulega gerir það það, alla vega ef viðkomandi hefur ekki dvalarrétt í öðru Schengen-ríki. Ég hugsa að endurkomubann hafi minni fælingarmátt gagnvart þeim sem eru með réttindi í öðru Schengen-ríki. Þá fara þeir bara þangað og geta síðan farið annað á Schengen-svæðinu nema þetta endurkomubann feli í sér eitthvað meira en bara endurkomubann til Íslands. Svo er talað um að vegna þess að þetta sé tímabundin breyting þá ætti hún ekki að fela í sér sérstakan hvata.

Eins og þessar breytingar og þessar vangaveltur horfa við manni núna þá er ekkert galið við þetta í fljótu bragði. En það þarf hins vegar að skoða fyrir nefndinni hver réttlætissjónarmiðin eru í málinu og sömuleiðis að rýna betur í það hvort aðilar innan kerfisins hafi rætt við fanga, hafi þekkingu á þeirra viðhorfum, hvað teljist fælandi og hvað ekki, vegna þess að maður heyrir það auðvitað líka að menn víla það ekki fyrir sér, þeir sem eru í ákveðinni starfsemi í ákveðnum löndum, að sitja í íslensku fangelsi í nokkur ár. Ef sá tími er orðinn enn þá styttri og svo þurfi menn bara að fara aftur til síns heima þá er auðvitað komin upp staða þar sem mörgum a.m.k. gæti þótt það ekkert sérlega íþyngjandi að fá slíkan fangelsisdóm.

Á síðustu árum hefur náttúrlega umfang skipulagðrar glæpastarfsemi á Íslandi verið þannig að það veldur verulegum áhyggjum. Fangelsiskerfið er hluti af okkar tækjum til þess að vinna virkilega á þessum málum og ef þau eru ekki í lagi — eins og maður sér núna með þessu, þetta er annað dæmi um áhrif svona stjórnlausrar innflytjendastefnu að mörgu leyti myndi ég segja líka. Þegar maður horfir á þróun heildarboðunarlista þá tekur hann ákveðið stökk, má segja. Það eru 450 manns sem bíða eftir að afplána dóm upp úr 2013, 2014 en svo eftir því sem fólki fjölgar hérna þá fjölgar á listanum meira og minna í takti við það. Þegar heildarboðunarlisti er svo langur að það er ekki verið að kalla inn til afplánunar menn sem hafa þó verið dæmdir fyrir afbrot þá er það bara ákveðin lögleysuþróun. Það er ákveðin lögleysa sem grípur um sig vegna þess að þetta er mjög fljótt að spyrjast út. Allir sem eru inni í þessu kerfi, sæta rannsókn eða eru í glæpum eða eru lögmenn og annað eins vita auðvitað nákvæmlega hvernig í pottinn er búið. Þetta eru opinber gögn, þetta er bara í skjölum Alþingis þannig að menn geta alveg vitað þetta, t.d. þessir Íslendingar sem bíða á þessum listum eftir að komast í betrunarvist. Hvað hugsa þeir? Þeir hugsa: Já, það er vissulega refsins við þessu afbroti en meira er það ekki, það er ekki verið að koma mönnum inn í afplánun. Þetta er mikil lögleysa og það á vafalaust sinn þátt í stórum hluta þeirra glæpa sem eru framdir að menn gera það í trausti þess að sæta ekki refsingu.

Þetta ástand þar sem við erum komin með Hólmsheiði þar sem eru 61% erlendir ríkisborgarar, sem eru vel að merkja eitthvað í kringum 20% af heildarfjölda, við erum með Litla-Hraun þar sem 67% fanga eru erlendir ríkisborgarar. Þetta eru stóru fangelsin, 61 og 67%. Í gæsluvarðhaldi eru 80% erlendir ríkisborgarar. Þetta er eiginlega fáránlegt og fyrir þann sem, eins og ég lýsti hérna áðan ef við ferðuðumst aftur í tímann og spyrðum einhvern fyrir 80 eða 100 árum — ef við fyllum hér fangelsin af útlendingum þannig að við getum ekki einu sinni notað þau í réttum tilgangi fyrir Íslendinga, hvernig kæmi það mönnum fyrir sjónir? Það erum við sem höfum lifað á þessum tímum alþjóðavæðingarinnar sem verðum samdauna þessari óheillaþróun. Það er það sem við þurfum að taka svolítið fast á. Ég hvet eindregið til þess að leita annarra leiða en að fylla fangelsin af erlendum mönnum sem þetta eru í flestum tilvikum. Betrunarvist er það sem skiptir máli gagnvart fangelsum, að það sé virk og góð betrunarvist. Það er markmiðið með öllu heila dæminu. En það er alveg augljóst, eins og er sagt í svona hálfum hljóðum í greinargerð þessa frumvarps, að miklar áskoranir felast í því að reyna að bjóða upp á betrunarvist við þessar kringumstæður. Þegar menn eru alveg úr tengslum við landið og eru hérna í fangelsum, tala ekki tungumálið, eru ekki í neinu sambandi og ef þannig hópur er fjölmennur inni í fangelsunum þá er þetta bara virkilega flókið verkefni.

Hvernig vinnum við á þessum vanda til lengri tíma? Innflytjendastefna hefur náttúrlega mikið um þessi mál að segja. Við erum auðvitað svolítið í eðli okkar alltaf að taka á vandanum eftir á, rétt eins og við erum núna að fara af stað með brottfararúrræði sem, eins og hæstv. ráðherra kom inn á, ætti að létta eitthvað af fangelsunum sem er bara til bóta. Út frá því skilur maður líka hvata stjórnvalda til þess að vilja fara í svona brottfararúrræði. Það er líka verið að taka á vanda sem er orðinn töluvert umfangsmikill en þarf þá að laga með plástrum þótt reyndar það úrræði geti alveg skapað eðlilega hvata til lengri tíma, fælingarmátt svokallaðan. En við erum alltaf að taka á vandanum eftir á. Við þurfum líka að horfa á umgjörð útlendingamála svolítið forvirkt og taka virkilega útlendingalögin til skoðunar, fara í gegnum þau lið fyrir lið í öllum grundvallaratriðum og skoða hvernig mögulega er hægt að ganga eins langt og við getum, eins og við teljum skuldbindingar okkar leyfa, sem er nú stundum ákveðið svigrúm gagnvart. Við getum olnbogað okkur áfram í þeirri viðleitni að loka virkilega landinu fyrir mönnum sem eru, eins og í mörgum tilvikum þarna, það illa farnir af lífinu — það er hægt að hafa samúð með því — að það er hreinlega hægt að segja sér það fyrir fram að það er ekki góð hugmynd að hafa opið inn í landið fyrir þá einstaklinga.

Ef maður horfir á ástand heimsmálanna þá er skollið á einhvers konar blandað stríðsástand, viðvarandi ástand. Það er ekki beint þriðja heimsstyrjöld eða neitt slíkt en þetta er svona blandað ástand og það opnast einn kafli þar og lokast svo og síðan opnast annar kafli hér. Við þessar kringumstæður þurfum við náttúrlega að gæta þess mjög vel að hér komi t.d. ekki önnur eins holskefla og við höfum t.d. fengið í tengslum við önnur átök nýlega og á undanförnum árum. Við sjáum ástandið núna í Íran þar sem Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn eru í sínu stríðsbrölti og maður getur haft djúpa samúð með aðstæðum almennra borgara þar, en það er alveg eins líklegt að það skelli önnur flóttamannabylgja á Evrópu. Ég tel mikilvægt, eins og ég segi, að við förum í gegnum öll útlendingalögin og stoppum í öll göt og einfaldlega drögum úr öllum mögulegum hvötum til að fá hingað fólk sem er — eins og ég segi, það er hægt að horfa á þetta ástand og hafa djúpa samúð með aðstæðum fólks. En spurt er hvort besta leið okkar til að hjálpa t.d. þeim sem þjást í þessum aðstæðum sé að bjóða þeim hingað þar sem verulega takmarkaðar líkur eru á að menn nái að aðlagast samfélaginu eða hafi á annað borð nokkurn hug á því. Maður las nú bara nýlega í fréttum, það var fjallað um það í DV, að meiri háttar hópárás hafi orðið í Túnunum þar sem mættust, að sögn DV, Íslendingar og Palestínumenn. Gróft ofbeldi, tugir manna. Það eru einmitt svona aðstæður sem vekja mann til umhugsunar um það hvort besta leið okkar til að hjálpa fólki í þessum hrikalegu aðstæðum sem þarna hafa myndast sé að flytja að einhverju leyti átökin hingað, það hljómar stundum eins og við höfum tilhneigingu til að gera það. Víða í Evrópu hefur þróunin verið þannig að það blossa t.d. upp átök í einhverju landi, á milli tveggja þjóða, og svo búa innflytjendur frá þessum þjóðum í einhverjum Evrópulöndum og þá kemur upp spenna þar. Það er auðvitað þetta sem við þurfum að veigra okkur mjög við að gera og einfaldlega taka allt þetta kerfi til endurskoðunar. Og einmitt í tengslum við þessi fangelsismál þá er það auðvitað þannig, eins og hæstv. dómsmálaráðherra segir, að það þarf að vera með frekar skýra stefnu til að gæta þess að allir hvatar í kerfinu séu réttir. Það er verkefnið hér. Ég vona að við getum unnið ágætlega að þessu máli í hv. allsherjarnefnd og ég lýk þar með máli mínu.