157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[14:20]
Horfa

Fida Abu Libdeh (F) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin og ég er alveg sammála því að við þurfum að hafa skýra stefna varðandi útlendingamál og allt það. Ég bara vildi benda á það að við erum yfirleitt að taka neikvæð dæmi. Við erum ekkert að tala um það hvernig við getum byggt upp samfélagið saman. Við erum alltaf að vitna í það að útlendingar komi hingað og séu að fylla fangelsin. Við gleymum að t.d. hjá okkur á Suðurnesjum eru 33% af íbúum af erlendum uppruna og þegar við tölum svona inn á Alþingi Íslendinga þá erum við að taka þau með, þau eru innifalin í þessum hópi. Já, allt í lagi að hafa skýra stefnu og ég er sammála því og fólk sem er að koma á forsendum fjölskyldusameiningar, er að byggja upp líf og aðlagast samfélaginu, er alveg hjartanlega velkomið til Íslands. En þegar við erum að blanda saman þessum hópum, öfgahópum og hópum í skipulagðri glæpastarfsemi sem koma til Íslands og eru að fylla íslensk fangelsi, við fólk sem er í neyð og er að koma hingað sem flóttamenn, þá er svolítið ekki verið að nota réttar forsendur þegar við erum að tala um innflytjendur.

Ég þakka fyrir svörin — ég veit ekki hvað ég hef mikinn tíma — en ég vil bara benda á þessi 30% hjá okkur á Suðurnesjum, þriðjungur þeirra er hámenntað fólk sem er að vinna og er að byggja upp okkar samfélag á Suðurnesjum og okkur ber að nefna það og þakka þegar við erum að tala um innflytjendur.