fullnusta refsinga.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég held að þessi umræða skiptist að mörgu leyti í tvo hluta. Það er heildarinnflytjendastefnan, hvernig langtímaþróunin er í lýðfræðinni. Víða eru íbúar af erlendum uppruna og erlendir ríkisborgarar hreinlega stór hluti af mannfjöldanum, sem er reyndar þróun sem ég hef goldið varhuga við. Sú þróun verður líka að vera sjálfbær og hún hefur alls ekki verið það. En síðan er hitt, eins og hv. þingmaður vék að og ég fjallaði um í ræðu minni, að það eru t.d. frásagnir sem við heyrum sem renna stoðum undir það að þegar stríðsátök, eins og ég fjallaði einmitt um, geisa víða um heim og færast í aukana — maður gerir aldrei lítið úr því, það eru gjörsamlega hrikalegar og óhugsandi aðstæður fyrir mig sem Íslending að setja mig í þau spor, gjörsamlega hrikalegar. En ef sú tilfinning ræður för í stjórnkerfinu gagnvart því, að við verðum þá einfaldlega að hleypa hingað inn eins mörgum og við getum, þá missum við oft sjónar einfaldlega af heildarhagsmunum samfélagsins og sömuleiðis ákveðinni áhættu sem fylgir því að taka við stórum hópum frá stríðshrjáðum svæðum. Það er í sjálfu sér engin sérskoðun mín að það fylgi því ákveðin áhætta. Ég held að allir séu einhuga um það. En það er hins vegar hlutverk okkar stjórnmálamanna og mitt auðvitað í minni hluta að koma frekar í veg fyrir að við göngum of langt, til þess að þetta sé öllum til heilla, hvort sem það er Íslendingum eða innflytjendum sem hingað koma.