fullnusta refsinga.
Virðulegur forseti. Ég vænti þess að hv. þingmaður sé mér sammála um að þetta sé verkefni fyrir hv. allsherjar- og menntamálanefnd, að særa svolítið fram sviðsmyndina eins og hún blasir við okkur í dag um þessi mál. En hvernig horfir þetta við hv. þingmanni, þær aðstæður sem þetta frumvarp boðar, tímabundið að vísu? Ég ætla ekki að fara út í stjórnarskrárvinkilinn í því, það er auðvitað sérstakt mál sem nefndin þarf að skoða. En hvernig horfir þessi sviðsmynd sem yrði, verði málið samþykkt, við hv. þingmanni? Við erum þá annars vegar með íslenskan fanga og hins vegar erlendan fanga, báðir hafa framið sama brotið, segjum t.d. bara það sem er algengt, að vera svokallað burðardýr. Þeir fá sambærilegan dóm, jafn langan dóm. Hinn erlendi fangi þarf að afplána einn þriðja af refsingunni en Íslendingurinn þarf að afplána helminginn af refsingunni, mögulega lengur en segjum helming. Nú hefur hv. þingmaður reynslu úr þessum geira. Getur hann lagt mat á það hvernig það yrði fyrir t.d. og þótt ekki væri nema stemningu í fangelsum þegar svona aðstæður skapast? Ég sé fyrir mér líka að ef við lítum á atvinnugreinina innflutning á fíkniefnum, ef við getum orðað það þannig — væri þetta ekki til þess fallið að þeir innflytjendur sem hyggja á þetta horfi frekar til erlendra burðardýra, það sé auðvelt að fá fólk og selja vesalingum sem koma erlendis frá að taka að sér þessi verkefni og koma hingað gegn því að það blasi við að þeir þurfi að afplána skemur en Íslendingar? Sér hv. þingmaður enga hættu í þessu?