157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[14:38]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar seinna andsvar og get tekið undir flest af því sem hún sagði hér og ég held að þetta séu einmitt álitaefnin sem blasa við hv. allsherjar- og menntamálanefnd og hún þurfi að skoða ítarlega, þ.e. einhvers konar jafnræði á milli íslenskra og erlendra fanga. En til þess er að taka að hér er um heimildarákvæði að ræða, þetta er ekki skylduákvæði. Það er lagt upp með að það sé sem sagt búið að taka ákvörðun um að brottvísa erlendum brotamanni sem hefur lokið afplánun að einum þriðja og hann fái þá líka endurkomubann síðan utan Schengen-svæðisins. Grundvallaratriðið er náttúrlega að hér vegast á sjónarmið, annars vegar um að reyna að létta á fangelsiskerfinu og hins vegar sjónarmið um hvort um geti verið að ræða einhvers konar brot á jafnræðisreglu. Það er eitthvað sem ég met sem svo að hafi verið metið í dómsmálaráðuneytinu og það komist að þeirri niðurstöðu að þetta gangi upp. Engu að síður þarf að skoða þetta vel í meðförum nefndarinnar á frumvarpinu.

Hæstv. forseti. Hv. þingmaður nefndi sérstaklega stöðu sem gæti komið upp í fangelsunum. Ég hygg að í fangelsum sé einmitt oft og tíðum dálítið viðkvæmt ástand þannig að þetta geti alveg skapað einhvers konar misvægi eða ójafnvægi á milli fangahópa. Það er þannig, því miður, og við höfum af því fregnir nokkuð reglulega að það er fíkniefnaneysla í fangelsum, sem er slæmt, en gerir ekkert til að jafna þessa stöðu eða gera hana þægilegri, þannig að ég held að það gæti alveg orðið. En þá er það náttúrlega stofnunarinnar, Fangelsismálastofnunar, (Forseti hringir.) að koma málum þannig fyrir að það dragi úr spennu í þessu sambandi.