157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[14:45]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir svar hans við andsvari mínu. Við höfum fengið fyrir allsherjar- og menntamálanefnd talsmenn fanga og þar hefur komið fram hjá þeim, bæði hjá þeim og svo bara heyrir maður það í samfélaginu, að það eru ákveðnir erfiðleikar á milli ákveðinna hópa innan fangelsanna og það tengist oft þjóðerni, kannski Íslendingar gegn öðrum, með einhverjum hætti. Ég er kannski á sömu slóðum og hv. þm. Sigríður Á. Andersen með það að fangelsi eru heimili og samfélög sem við þurfum að lifa með og reynum að hafa þau eins bærileg og hægt er. Hér talaði hæstv. ráðherra um endurkomubann og endurkomubann innan Schengen-svæðisins. Ef við gefum okkur bara að einstaklingur sem býr innan Schengen, er ekki með ríkisfang utan Schengen, taki þátt í alveg eins glæp og einhver annar sem er íslenskur, þá eru einhverjar líkur á því að hann afpláni einn þriðja dómsins og fari síðan til heimalandsins. Getur hann þá, og ég spyr hvort það sé rétt skilið, kannski getur hv. þingmaður varpað ljósi á það, ferðast um Schengen óáreittur af því að hann er með ríkisfang þar? Eða mun þetta endurkomubann tengjast öðrum Schengen-ríkjum líka þannig að hann verði fastur í sínu ríki? Og ef hann verður það, þá hve lengi? Ég held að það sé ekki þannig reyndar. Ég held að menn utan Schengen fái endurkomubann inn á Schengen og til Íslands en hinir fái bara endurkomubann til Íslands. Það getur ýft upp þennan ágreining sem er inni í fangelsunum nú þegar. Auðvitað er þetta til að losa fangelsin, ég skil það alveg. En þetta er alla vega álitamál sem ég held að við þurfum að skoða og væri ágætt að fá álit hv. þingmanns á þessu.