157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[14:47]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen hans seinna andsvar og ég held að þessar vangaveltur allar í dag séu mjög viðeigandi. Í þessu máli, ef þessi leið verður farin, þá er auðvitað verið að fara óhefðbundna leið og það er eðlilegt að við veltum fyrir okkur ýmsum flötum sem geta komið upp við þær aðstæður. Þessi flötur sem hv. þm. Jón Pétur Zimsen nefnir, sem er í samræmi við það sem hv. þm. Sigríður Á. Andersen nefndi hér áðan líka, er að það geti orðið einhvers konar undiralda í samskiptum fanga innan fangelsanna. Ég sé enga aðra lausn á því en að Fangelsismálastofnun og þeir sem reka fangelsin, forstöðumenn fangelsanna, sjái svo um að það sé allt í sátt og samlyndi inni á því heimili eins og við nefndum.

Varðandi endurkomubannið þá er alveg skýrt að ef viðkomandi er EES-borgari þá fær hann bara endurkomubann til Íslands, hann hefur frjálsa för innan Schengen-svæðisins. Það sem mig langar til að nefna í því sambandi er að hvað varðar mann sem brýtur af sér á Íslandi og er erlendur, þá myndi verða spurst fyrir um hann í nágrannalöndunum undir rannsókn málsins í gegnum Interpol eða í gegnum Europol og viðkomandi væri eftir atvikum, sérstaklega eftir að hann hlyti dóm, skráður þar þannig að upplýsingar annarra landa um brotaferil hans á Íslandi munu liggja fyrir ef hann kemur undir hendur lögreglu í öðru ríki. En endurkomubannið nær samt sem áður bara til Íslands og varðar ekki önnur Schengen-ríki þannig að viðkomandi getur, sé hann hluti af brotahópi, haldið áfram að brjóta af sér í öðrum löndum. Það er alveg rétt. En ég ítreka það og mér finnst mikilvægt að það komi fram að hér er um heimild að ræða og það er alls óvíst að sú heimild verði alltaf nýtt að mínu mati.