fullnusta refsinga.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir innlegg sitt. Ég er sammála mestöllu, margt sem á rétt á sér. Ég er enginn lögfræðingur en þessi heimild gildir um útlendinga eða fólk sem hefur ekki tengsl við Ísland. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvað gerist þá ef tengslin myndast eftir á, eftir að búið er að hleypa þeim út, þegar þeir eru ekki búnir að afplána allt tímabilið og svo myndast tengsl erlendis? Sem dæmi geta sumir verið Evrópubúar eða að Íslendingar eru að ferðast og kynnast fólki. Ég er bara að velta því fyrir mér hvort nefndin hafi tekið tillit til þess eða hvort þingmaðurinn hafi eitthvað spáð í hvað gerist ef tengslin myndast eftir á, eftir að búið er að hleypa þeim út.