ákvarðanir nr. 332/2023 og 333/2023 um breytingu á XVII. viðauka við EES-samninginn o.fl.
Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd sex ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar sem teknar voru á árunum 2023 og 2025 um breytingar á viðaukum við EES-samninginn á sviðum hugverkaréttinda, tæknilegra reglna, orkumála, umhverfismála og fjármálaþjónustu. Lúta þessar ákvarðanir að því að fella sjö gerðir Evrópusambandsins inn í EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég mun nú gera stuttlega grein fyrir helstu efnisatriðum þeirra ákvarðana sem hér um ræðir. Í fyrsta lagi fjallar þingsályktunartillagan um ákvörðun nr. 332/2023 sem fellir inn í EES-samninginn tilskipun (ESB) 2019/789. Hún fjallar um nýtingu höfundaréttar og skyldra réttinda sem gilda um tilteknar netútsendingar útvarpsfyrirtækja og endurvarp hljóðvarps- og sjónvarpsefnis. Markmið hennar er að bæta aðgang að efni yfir landamæri og einfalda leyfisveitingar fyrir tilteknar netútsendingar útvarpsfyrirtækja og fyrir endurvarp hljóðvarps- og sjónvarpsefnis milli aðildarríkja ESB. Gerðin felur í sér að heimilda til notkunar höfundaréttarvarins efnis verði aflað í upprunaríki, en þær gildi um leið yfir landamæri innan EES. Þetta skapar aukið hagræði fyrir fjölmiðla og bætir aðgengi almennings án þess að skerða rétt rétthafa til sanngjarns endurgjalds. Innleiðing gerðarinnar hér á landi kallar á breytingar á höfundalögum nr. 73/1972. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra mun leggja fram frumvarp til innleiðingar á tilskipuninni á næsta löggjafarþingi.
Í öðru lagi fjallar þingsályktunartillagan um ákvörðun nr. 333/2023 sem fellir inn í EES-samninginn tilskipun (ESB ) 2019/790 sem samræmir ýmsar reglur um höfundarétt og skyld réttindi sem varða hinn stafræna innri markað og notkun verndaðra verka yfir landamæri. Tilskipunin snýr fyrst og fremst að réttindum og skyldum aðila á einkamarkaði. Henni er ætlað að hafa jákvæð áhrif á rétthafa að höfundaréttarvörðu efni, tryggja varðveislu menningararfs og auðvelda starfsemi mennta-, rannsókna- og menningararfsstofnana, svo sem við fjarkennslu á netinu. Innleiðing gerðarinnar kallar einnig á breytingar á höfundalögum sem fyrirhugaðar eru með frumvarpi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra á næsta löggjafarþingi.
Í þriðja lagi er um að ræða ákvörðun nr. 172/2025 sem tekur upp í EES-samninginn reglugerð (ESB ) 2024/1860 sem hefur það að markmiði að tryggja öruggt og stöðugt framboð af lækningatækjum til sjúkdómsgreiningar í glasi innan Evrópska efnahagssvæðisins. Einnig miðar hún að því að auka gagnsæi með innleiðingu í skrefum á Evrópska gagnabankanum um lækningatæki til verndar lýðheilsu og öryggi sjúklinga. Innleiðing gerðarinnar hér á landi kallar á breytingar á lögum um lækningatæki nr. 132/2020. Heilbrigðisráðherra hefur þegar lagt fram frumvarp til laga um innleiðingu á reglugerðinni á yfirstandandi löggjafarþingi, sbr. þskj. 422, 301. mál, og er það frumvarp nú til umfjöllunar hjá velferðarnefnd þingsins.
Í fjórða lagi eru með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2025 teknar upp í EES-samninginn tilskipun (ESB) 2018/2001, svokölluð RED II-tilskipun, um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum, ásamt tengdri reglugerð (ESB) 2022/759. RED II-tilskipunin gegnir lykilhlutverki í orkuskiptum m.a. með því að einfalda leyfisveitingarferli fyrir virkjanir sem framleiða orku úr endurnýjanlegum orkugjöfum ásamt því að stuðla að auknu orkuöryggi með því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis til að mynda með þróun endurnýjanlegrar hitunar og kælingar og þróun endurnýjanlegs flutningaeldsneytis, sjálfbærri orku á viðráðanlegu verði og með því að ýta undir tækniþróun og nýsköpun. Ætlunin er að skapa hvata til að flýta fyrir fjárfestingum í nýsköpun og nútímavæðingu lykilatvinnugreina.
Ísland uppfyllir skilyrði fyrir undanþágu frá árlegri aukningu hlutdeildar endurnýjanlegra orkugjafa við hitun og kælingu þar sem hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa er yfir 60%. Samið var um sérstaka aðlögun fyrir Ísland við upptöku RED II-tilskipunarinnar í EES-samninginn sem er sú sama og veitt var ríkjunum Möltu og Kýpur fyrir útreikning sjálfstæðs markmiðs fyrir flug, þar sem miðað er við lægri hlutdeild af notkun endurnýjanlegrar orku, eða 4,12% í stað 6,18%. Innleiðing RED II-tilskipunarinnar hér á landi krefst breytinga á lögum nr. 30/2008, um upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum o.fl., raforkulögum nr. 65/2003, lögum nr. 40/2013, um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi, auk annarra laga og reglugerða sem kunna að falla undir einföldun leyfisveitinga í umhverfis- og orkumálum. Ég hef fengið þær upplýsingar að fyrirhugað sé að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra leggi fram frumvarp í þessu skyni á næsta löggjafarþingi, en ekki þessu þingi eins og staðan var þegar þessi þingsályktunartillagan var rituð.
Í fimmta lagi er um að ræða ákvörðun nr. 249/2025 sem fellir inn í EES-samninginn reglugerð (ESB) 2024/1849 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/852 um kvikasilfur að því er varðar tannsilfur og aðrar vörur með viðbættu kvikasilfri sem falla undir framleiðslu-, innflutnings- og útflutningsbann. Reglugerðin víkkar út fyrirliggjandi bann við notkun tannsilfurs til allra, óháð aldri. Eftir sem áður er gerð sú undanþága að notkunin sé heimil ef tannlæknir telur það nauðsynlegt með hliðsjón af læknisfræðilegum þörfum sjúklingsins. Innleiðing gerðarinnar hér á landi kallar á breytingar á efnalögum nr. 61/2013. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur lagt fram frumvarp í þessu skyni á yfirstandandi löggjafarþingi um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála, mál 265.
Síðust er ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 294/2025 sem fellir inn í EES-samninginn framselda reglugerð (ESB) 2025/1496 um breytingu á svonefndri CRR-reglugerð, sem hefur að geyma varfærniskröfur til banka og annarra lánastofnana. Breytingin varðar frestun á framkvæmdardagsetningu krafna um eiginfjárgrunn vegna markaðsáhættu til 1. janúar 2027. Innleiðing reglugerðarinnar krafðist breytinga á lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 og hefur þegar verið veitt lagagildi með lögum nr. 102/2025 í desember síðastliðnum.
Virðulegi forseti. Haft var samráð við hv. utanríkismálanefnd Alþingis vegna upptöku umræddra gerða í samninginn og gerði nefndin ekki athugasemdir við upptöku þeirra á þann hátt sem þingsályktunartillagan tilgreinir. Auk þess var haft samráð við atvinnuveganefnd er varðar framangreinda tilskipun ESB um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum sem sömuleiðis gerði ekki athugasemdir við upptöku hennar.
Nánari upplýsingar, m.a. um áhrif innleiðingar gerðanna, má finna í meðfylgjandi tillögu til þingsályktunar.
Ég legg til að þegar umræðu þessari lýkur verði tillögunni vísað til hv. utanríkismálanefndar.