157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

réttindi og skyldur starfsmanna.

536. mál
[20:25]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir ljómandi góðar spurningar. Ástæða þess að þessi tímabundni setningartími er lengdur er af praktík einni. Það hefur sem sagt komið í ljós að í mörgum tilfellum er um að ræða tímabundna fjarveru sem varir lengur en ár. Það hefur með ýmsa hluti að gera, algengan tíma sem embættismenn verja t.d. við erlendar stofnanir og annað slíkt. Samt sem áður er leyfið tímabundið en reynslan hefur sýnt að þetta ákvæði hefur þrengt mjög að stofnunum. Ég tek almennt undir það sjónarmið að vegna þess að um undantekningu frá meginreglu er að ræða ætti tíminn auðvitað að vera eins stuttur og mögulegt er. En þetta er sett inn í lögin til þess að skapa sveigjanleika fyrir viðkomandi starfsmenn og það hefur reynst stofnununum erfitt að eiga við vegna þess að það sem var kannski einu sinni að jafnaði bara árs fjarvera hefur orðið eitthvað lengra.

Varðandi áminningarskyldu forstöðumanna er hárrétt sem hv. þingmaður nefnir, hún fellur alfarið niður og lýtur þá sömu reglum í ákvarðanatöku eins og uppsögn hvaða annars starfsmanns og myndi þá t.d. vera fullkomlega rökstudd í skilningi stjórnsýslulaga á grundvelli þess að stofnun hefði ekki haldið sig innan fjárheimilda.