157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

536. mál
[20:27]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Varðandi lenginguna úr einu ári í tvö ár þá held ég að það væri auðvitað hægt að nota þessa afsökun æðioft, að það sé bara praktískt eða bara pirrandi að þurfa að standa í því að auglýsa störf. Það viðkvæði hefur maður nú heyrt í Stjórnarráðinu. Ég myndi halda að ef það eru einhverjar sérstakar ástæður uppi, t.d. af því að hæstv. ráðherra nefnir t.d. dvöl við alþjóðastofnun, þá ætti frekar að lögfesta sérstakar heimildir, sérstakar undanþáguheimildir, af því að almenna reglan er auglýsingarskylda og við eigum að halda okkur við hana nema í mjög sérstökum tilvikum. Að mínu mati er heimildin of opin og óþarfi að lengja tímann í ákvæðinu.

Önnur athugasemd sem ég er með til hæstv. ráðherra varðar þessa lögfestingu almennrar eða opinnar heimildar fyrir stjórnvöld eins og er lögð til í 1. gr. Þrátt fyrir að ég átti mig á því, og það kemur fram í greinargerðinni, að það er stundum brugðist við þessu með einhverjum bráðabirgðaákvæðum í framkvæmd, þá hef ég ákveðnar efasemdir um að það sé verið að lögfesta svona almenna opna heimild. Ég vildi gjarnan heyra ofan í hæstv. ráðherra varðandi þessar breytingar í 1. gr.