157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

536. mál
[20:29]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Ég skil ákaflega vel athugasemdir hv. þingmanns um að frávik og undanþágur eigi að vera þröng. En ég vil í þessu samhengi undirstrika að 365 dagar eru einhver stjarnfræðileg tilviljun á lengd árs á jörðinni og það er ekki beinlínis þannig að það gerist eitthvað stórmerkilegt á degi 366 og hvar nákvæmlega á að draga þessa línu? Hvenær er hún enn þá þröng? Við getum auðvitað rætt það og ég er sannfærður um að hv. þingmaður muni taka umræðu í meðferð málsins, hvort sem er í þingsal eða í nefnd, um það hvort línuna megi draga einhvers staðar annars staðar. Eins og ég segi þá er enn þá um það að ræða algjörlega skýlaust að það beri að auglýsa störf. En það eru málefnalegar ástæður fyrir því að veittar eru tímabundnar heimildir til að sinna öðrum störfum. Þetta getur verið mjög mikilvægur partur af uppbyggingu mannauðs að fólk fái reynslu annars staðar frá og sú hefð að slík fjarvera sé nákvæmlega 12 mánuðir er hugsanlega barn síns tíma. — Ég kemst að vísu ekki yfir meira en þetta.