157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

samráð við ráðuneyti um mál í utanríkismálanefnd.

[15:05]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegi forseti. Varðandi þetta mál sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er að hreyfa hér þá get ég nú ekki tekið undir að þetta sé réttur skilningur á því sem fór fram þarna á fundinum. Það var ekki verið að tala neitt sérstaklega um að það ætti að kippa úr sambandi þingskapalögum með öllum þeim hefðum og venjum sem við höfum unnið eftir hér í þinginu og í þingnefndum. Ég hygg að svo sé ekki. Ég vildi bara færa það til bókar að ég er hjartanlega ósammála þeim skilningi sem hér kom fram í ræðustólnum áðan.