samráð við ráðuneyti um mál í utanríkismálanefnd.
Frú forseti. Þetta er algerlega ótækt. Það fór ekki á milli mála, og ég skrifaði það hjá mér orð fyrir orð þó að ég vitni ekki orðrétt í það sem sagt var fyrir nefndinni, að nú væri það mat ráðuneytisins að því bæri ekki skylda, hæstv. ráðherra bæri ekki skylda til þess að fylgja samráðsreglu þingskapa ef um þingmál væri að ræða. Með öðrum orðum: Hvenær sem er getur ríkisstjórn eða hæstv. ráðherra gert hvað sem er og sleppt því að upplýsa hv. utanríkismálanefnd í samræmi við þingsköp og svo bara haldið því fram að það hafi hvort sem er staðið til að það kæmi þingmál um þetta síðar. Þetta heldur engu vatni, frú forseti. Þetta er mikið alvörumál því að við höfum séð hæstv. ríkisstjórn og meiri hlutann hér á Alþingi fara á svig við og stundum jafnvel brjóta þær hefðir og reglur, þingsköp sem hér hafa gilt um meðferð þingmála. Þetta er bara nýjasta dæmið. En þetta er dæmi um hversu langt menn eru tilbúnir að ganga í að bara endurskilgreina þingsköpin og (Forseti hringir.) mér finnst að hæstv. forseti Alþingis geti ekki látið þetta viðgangast svona.