samráð við ráðuneyti um mál í utanríkismálanefnd.
Frú forseti. Ég má til með að koma hér upp og taka undir orð hv. þm. Sigmars Guðmundssonar um að hér séum við að fara af stað með þetta mál í þessum farvegi, þ.e. í samráði við þjóðina, og að hér hafi já, vissulega verið tekin ákvörðun um það að vísa þessu máli ekki í samráðsgátt að svo stöddu. Ég get heldur ekki tekið undir orð hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um að hér sé verið að alhæfa eitthvað af hálfu ráðuneytisins um að ekki beri að senda þingmál í samráðsgátt. Ég ætla bara að frábiðja mér þennan skilning á orðum starfsmanna utanríkisráðuneytisins og vil biðla til samnefndarmanna minna í utanríkismálanefnd um að við færum þetta upp á aðeins hærra plan og ræðum málin efnislega en ekki aðeins alltaf formið, þótt það skipti máli. En þetta, þetta er bara rangt.