lengd þingfundar.
Frú forseti. Það var ágætisumræða um þetta á fundi þingflokksformanna og forseta fyrir hádegi í dag. Ég held að það hafi verið ágætissamhljómur á milli allra um það að reyna að haga þingstörfum með þeim hætti að við kæmumst öll í þessar móttökur, sem eru að mér skilst hjá öllum flokkum. Við í Viðreisn tökum á móti okkar gestum líka, rétt eins og aðrir flokkar, og ég held það sé engin ástæða til þess fyrir okkur hér í þinginu að vera eitthvað að gera lítið úr öðrum flokkum með því að þeirra móttökur hljóti að vera eitthvað skrýtnari en annarra. Það var ágætishljómur meðal þingflokksformanna, samhljómur um það að reyna að gera þetta þannig að það væri bæði hægt að koma málum áfram en á sama tíma að gera það sem við öll viljum, að sýna bændum virðingu í þeim móttökum sem fram undan eru. Þannig að ég held að það sé engin ástæða til að vera að búa til einhvern slag um þetta hér í ræðustól Alþingis.