157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lengd þingfundar og búnaðarþing.

[15:18]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Bara svo því sé haldið til haga þá óskaði ég eftir að tjá mig um atkvæðagreiðsluna og fékk orðið sem slíkur og það er væntanlega til á upptöku. En aðeins um þetta dagskrármál okkar. Hér koma hv. þingmenn og hæstv. ráðherrar stjórnarflokkanna upp og eru í raun að segja við okkur: Þið skuluð bara klára þessa umræðu á tveimur tímum eða tveimur og hálfum tíma um stóran lagabálk upp á 80–90 gr., um lagareldi. Gott mál að mörgu leyti, en við eigum að klára það þannig að það geti kannski einn eða rúmlega það frá hverjum þingflokki tekið til máls þegar mælt hefur verið fyrir málinu. Það lá í orðum hæstv. ráðherra. Það lá í orðum þingflokksformanna. Ef við gerum það ekki þá verður bara kvöldfundur þrátt fyrir þær aðstæður sem eru. Ég ítreka að þetta er í fyrsta skipti sem þingfundur er haldinn á þessum degi þegar búnaðarþing er sett. (Forseti hringir.) Það er vanvirðing við okkur þingmenn sem viljum hitta bændur og það er vanvirðing við bændur sem eru hér og koma til móttöku hjá stjórnmálaflokkunum í kvöld.