157. löggjafarþing — 87. fundur, 23. mars 2026.
lengd þingfundar og búnaðarþing.
Forseti. Nú veit ég ekkert hvað þessi umræða verður lengi í dag en mér þykir það alveg tvennt ólíkt að biðja um lengdan þingfund eða hvaða dagskrármál eru. Mig langar að beina því til forseta og biðja og óska eftir því að forseti dragi þetta til baka svo þingmenn geti hitt bændur síðar í dag án þess að þurfa að vanrækja störf sín á þingi á meðan.