157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lengd þingfundar og búnaðarþing.

[15:22]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég er ekki viss um að það geri málið betra að þér bætið því við að það sé hvort eð er ósk forseta að menn hætti að tala tímanlega til að fara að hitta bændur. En nú spyr ég hæstv. forseta bara beint út: Finnst hæstv. forseta það viðeigandi að þingmenn stjórnarliðsins hlæi að því þegar hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson kemur hér upp og minnir á að um sé að ræða hefð frá árinu 1899? Er það svona sem þessi meiri hluti ætlar að nálgast þingið? Því að það hafa verið ýmsar vísbendingar um það að þau séu svo sérstök, svo einstök, að hefðir sem ná jafnvel aftur á þarsíðustu öld eigi ekki við um þau. Reglurnar eigi ekki við um þau, þingsköpin eigi ekki við um þau; þau séu svo einstök að þau geti farið sínu fram. Og telur hæstv. forseti að slík framganga sé góð og til þess fallin að vernda lýðræðislegt fyrirkomulag í landinu?