157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lengd þingfundar og búnaðarþing.

[15:23]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Mig langar aðeins að ræða hér um fundarstjórn forseta og orð hæstv. ráðherra og orð hæstv. virðulegs forseta. Hér virðist lýðræðið vera komið í einhvers konar tímaglas. Þingmenn hér, sem eru kjörnir fulltrúar almennings í landinu, eru að fara að ræða risastórt mál sem tengist lagareldi og er umdeilt um land allt og skeiðklukka er sett í gang. Lýðræði krefst tíma. Við getum ekki stýrt því nákvæmlega hvernig það þróast en að setja svona skilyrði hálfgerð, frú forseti, er sérstakt og um leið er verið að brjóta áratugahefð. Þetta er eitthvað sem ég hvet forseta til að taka til endurskoðunar. Lýðræðið er ekki á einhverri skeiðklukku, hvorki fyrir þingmenn meiri hlutans né stjórnarandstöðunnar.