lengd þingfundar og búnaðarþing.
Virðulegi forseti. Nú þætti mér vænt um ef hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar myndu koma hingað upp og lýsa yfir hvar þeim finnist sem forseti hafi farið út af sporinu hvað varðar fundarsköp og þingsköp hér því að ég sé ekki annað en að forseti hafi lagt til lengri þingfund og það hafi verið samþykkt og nú erum við aftur komin í einhvers konar endurskoðun á því hvernig sú afgreiðsla hefði átt að fara fram. Það er búið að samþykkja tillöguna og nú eigum við bara að halda áfram með okkar umræður. Svo er víða rætt um hefðir og það er rétt að það eru ýmsar hefðir í þinginu. En ef maður skoðar tölfræði aftur í tímann þá er heldur ekkert endilega venjan að 1. umræða um fríverslunarsamninga taki fimm tíma eins og gerðist á síðasta löggjafarþingi. Það er auðvitað ákveðin afleiðing þess ef þingmenn vilja fá miklu lengri tíma til að ræða mál í 1. umræðu. Það hefur þær afleiðingar að við þurfum auðvitað að hafa lengri fundi til að löggjafinn geti unnið sitt starf.