157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lengd þingfundar og búnaðarþing.

[15:26]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við erum að ræða fundarstjórn forseta og hv. þm. Pawel Bartoszek spyr: Hvar fór fundarstjórn út af sporinu? Svarið er: Við erum að brjóta hefð sem er búin að vera að síðan 1899. Það veldur mér áhyggjum, eins og fleirum, en þetta finnst stjórnarliðum fyndið. Það veldur mér áhyggjum. Og að segja við þingmenn: Ef þið verðið nú stillt og góð og prúð þá megið þið hitta bændur, það finnst mér fyrir neðan allar hellur. Þetta mál sem hér verður flutt á eftir er stórmál sem mikilvægt er að ræða vel. Það mun vekja mikla athygli og við þekkjum það þingmenn. Ég spyr bara: Er hægt, virðulegi forseti, að endurskoða þetta? Mér finnst enginn bragur á því að við séum að brjóta þessa hefð. Mér finnst bara enginn bragur á því. Við ætluðum að hitta bændur klukkan sjö (Forseti hringir.) og það að þurfa að gera upp við sig hvort maður taki þátt í umræðu sem varðar okkur öll og lífríkið og hagsmuni margra eða fara að hitta bændur eins og hefð hefur verið fyrir síðan á þarsíðustu öld — mér finnst enginn bragur á þessu. Ég í fyllstu vinsemd hvet (Forseti hringir.) virðulegan forseta til að endurskoða þessa ákvörðun sína.